mánudagur, 8. júlí 2013

Hyrna nr ???

Fleiri fallegar hyrnur.  Þessi fór í útskriftar pakkan til Sölku sætu



Vettlingar

Við fórum í sumarbústað í síðustu viku og það urðu til 3.5 par af vettlingum.  Hér er eitt af þeim.  Sem fóru í afmælis pakkan til mömmu :)







sunnudagur, 23. júní 2013

Sængur og móður gjöf

Jæja loksins e-hvað að detta af nálinni eða prjónunum.

Prjónaði þetta en og aftur.  Svo gaman að gera svona gammel dags peysur :)  Hef gert nokkrar svona



Heklaði einnig vagn-teppi.  Uppskriftina fann ég í bók sem ég á, hún heitir Heklað af list.  Æðisleg bók, með óteljandi hugmyndum.



Svo kemur að sjálfsögðu ein Hyrna í viðbót.  Endalaust gaman að gera þær. Hún snýr reyndar öfugt :)


sunnudagur, 9. júní 2013

Sumar peysa

Við Gabríel Máni fórum í Álafossbúðina á föstudaginn og ég leifði honum að velja garn í peysu.  Hér er útkoman!

Alveg hægt að segja að þetta er sko sumarpeysa



fimmtudagur, 30. maí 2013

Kragi/hetta

Var að prufa að gera kraga og eða hettu úr eingirni.  Finnst svo gaman að vinna með eingirni :)




Hauskúpa

Jæja ekki seinna vænna en að skella í vetlinga þar sem veturinn er ekki að taka enda, sýnist mér :/

Gabríel Máni bað um svona hauskúpu dæmi.